Í skipasmíðastöðinni Cemre í Tyrklandi hafa tveir af þremur nýjum togurum Samherja og ÚA, Kaldbakur og Björgúlfur, verið sjósettir og það fyrir allnokkru.

Kaldbakur er kominn lengst í smíðum og á meðfylgjandi mynd, sem birt hefur verið á Facebook-síðu Víðis Más Hermannssonar má sjá hvernig hann tekur sig út í skipasmíðastöðinni.