Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðinn forstöðumaður nýrrar stuðningsdeildar flugreksturs Icelandair. Nýja deildin er hluti af skipulagsbreytingum á rekstrarsviði Icelandair en með þeim hefur skipulag verið einfaldað og stjórnendum fækkað. Ábyrgð deildarinnar er margþætt og undir hana fellur meðal annars stjórnstöð félagsins á Keflavíkurflugvelli, sem hefur það að markmiði að reka leiðakerfi félagsins frá degi til dags (e. Network Control Center), verkefna- breytinga og umbótastjórnun, greiningarvinna, tölfræði og áætlanagerð.

Sylvía kemur til Icelandair frá Landsvirkjun þar sem hún var deildarstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði. Áður starfaði hún hjá höfuðstöðvum Amazon í Evrópu, fyrst við rekstur og áætlanagerð og síðan við Kindle deild fyrirtækisins þar sem hún sá um viðskiptagreind og vöruþróun fyrir vefbækur auk þess að leiða greiningar- og stefnumótunarvinnu fyrir samningagerð við bókaútgefendur. Áður starfaði Sylvía m.a sem forstöðumaður á fjármálastöðugleikasviði Seðlabanka Íslands og hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Sylvía er með M.Sc. próf í Operational Research frá London School of Economics og B.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt stundakennslu við verkfræðideild HÍ í rekstrarfræði, kvikum kerfislíkönum og verkefnastjórnun (MPM).  Hún situr í stjórn Ölgerðarinnar og  Símans og er í starfshópi um Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið. Sylvía er gift Kjartani Björgvinssyni og eiga þau tvö börn.