Svavar Pálsson, sýslumaður­inn á Húsa­vík, féllst á 40 millj­óna trygg­ingu sem kraf­ist var vegna lög­banns gegn gjald­töku af ferðamönn­um við Leir­hnjúk og Náma­skarð í dag. Þessu greinir mbl.is frá.

Þetta þýðir að lög­bannið sem kraf­ist var af fé­lags­mönn­um í Land­eig­enda­fé­lagi Reykja­hlíðar fyrr í sum­ar tek­ur strax gildi.

Félagsmenn hugðust upphaflega inn­heimta gjald af ferðamönn­um við Leir­hnjúk, Náma­skarð og Detti­foss. Hins vegar var fallið var frá gjald­tök­unni við Detti­foss eft­ir að samn­ing­ur náðist við Vatna­jök­ulsþjóðgarð um upp­bygg­ingu við foss­inn. Gjaldtaka hófst þó við hveri aust­an Náma­fjalls og við Leir­hnjúk 18. júní.

Sautján manns eiga hlut í Land­eig­enda­fé­lagi Reykja­hlíðar, af þeim fóru sjö fram á lög­bannið.