PricewaterhouseCoopers ehf. (PwC) hagnaðist um 187,5 milljónir króna á síðasta reikningsári samanborið við 48,1 milljón árið áður.

Hagnaðurinn jókst því um 290% á milli ára. Reikningsár PwC er frá 1. júlí til 30. júní. Félagið seldi þjónustu fyrir 1.440 milljónir króna á síðasta reikningsári og rekstrargjöldin námu 1.187 milljónum.