Ásbergi Jónsson, eigandi ferðaskrifstofunnar Nordic Visitor, óttast samdrátt ferðamanna frá Evrópu til Íslands. Telur hann að stigvaxandi gengi krónunnar hafi gert það að verkum að Ísland sé orðið of dýrt fyrir marga ferðamenn að því að er Morgunblaðið segir frá.

„Sala er að aukast mikið til Noregs, Lapplands og Skotlands,“ segir Ásberg. „Það er ekki enn hægt að kalla þetta samdrátt en ferðamenn eru farnir að breyta ferðamynstri sínu með því að kaupa styttri ferðir. Þegar verð hækkar 20-30% milli ára er stór hópur sem fer frekar til Noregs eða Skotlands.“