Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdsaq Iceland hækkaði um 0,10% í dag og stendur nú í 1.710,61 stigi. Hún hefur hækkað um 7,52% frá áramótum. Heildarvelta á mörkuðum nam 3,2 milljörðum, þar af nam velta á hlutabréfamarkaði ríflega 2 milljörðum og 1,2 milljörðum á skuldabréfamarkaði.

Gengi hlutabréfa Haga hækkaði mest eða um 1,86% í 765 milljón króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi bréfa N1 um 1,29% í 88,8 milljón króna viðskiptum.

Aftur á móti lækkaði gengi bréfa Vodafone lítillega eða um 0,81% 211,4 milljón króna. Einnig lækkaði gengi bréfa Símans um 0,48% í dag í 250 milljón króna viðskiptum.