Hagnaður Flugfélagsins Ernis, sem er hvað þekktast fyrir innanlandsflug, nam tæplega 29 milljónum króna í fyrra og jókst talsvert á milli ára. Árið 2015 hagnaðist félagið um ríflega fimm milljónir króna.

Rekstrartekjur flugfélagsins námu tæplega 1,2 milljörð­ um og hækkuðu á milli ára, en þær námu tæpum milljarði í fyrra. Eigið fé Ernis nam 61 milljón í árslok 2016. Skuldir félagsins á sama tíma námu 882 milljónum króna.