Hugbúnaðarfyrirtækið Tempo, sem er í eigu Origo, áður Nýherja, var með 17,9 milljón Bandaríkjadali í tekjur á síðasta ári. Það samsvarar um 1,8 milljörðum íslenskra króna. Félagið, sem fagnaði 10 ára afmæli á síðasta ári, er nú komið með yfir 12 þúsund viðskiptavini, en desember var tekjuhæsti mánuðurinn í sögu félagsins.
Er það um og yfir væntingum Finns Oddssonar forstjóra Origo, frá því í október en eins og Viðskiptablaðið greindi þá frá setti félagið um fjórðung af Tempo í söluferli.
Ágúst Einarsson framkvæmdastjóri Tempo segir desembermánuð hafa verið þann tekjuhæsta í sögu félagsins að því er fram kemur á vef Businesswire . Sagði hann vel heppnaðan tilflutning viðskiptavina yfir á vefþjóna Amazon vera mikilvægan áfanga í að geta boðið þjónustuna hraðar og til fleirri viðskiptavina.
Á árinu fjölgaði viðskiptavinum félagsins um 2 þúsund, en meðal nýrra viðskiptavina eru taldir upp Bank of Songapore, Airbus Defence, Space, Verizon, NBC Universal og Rolex. Jafnframt bætti félagið við sig 17 starfsmönnum á skrifstofunni í Montreal, svo nú eru starfsmenn þess í heildina um 100.
Félagið sem framleiðir hugbúnaðarlausnir til að hjálpa öðrum hugbúnaðarfyrirtækjum að skipuleggja vinnu og auðvelda reikningagerð, bætti á árinu við sig lausnum til viðbótar við Atlassian umhverfið sem félagið hefur hingað til unnið á. Er nú komið á markað Tempo fyrir Slack umhverfið einnig.
Fleiri fréttir um Tempo og tengd félög:
- 31. janúar 2018 - Origo hagnast um 433 milljónir
- 5. janúar 2018 - Sameinast undir nafninu Origo
- 25. október 2017 - Þriðjungi minni hagnaður Nýherja
- 3. október 2017 - Tempo sett í söluferli
- 25. september 2017 - Fjórðungsfjölgun hjá Tempo
- 22. ágúst 2017 - Kynna Tempo fyrir fjárfestum erlendis
- 18. ágúst 2017 - Nýherji hagnast um 166 milljónir
- 16. júlí 2017 - Skýjagrunnur Amazon lykill að vexti
- 13. júlí 2017 - Tempo í tilfærsluvanda