Aðalheiður Kristinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Sölustýringar (Global Sales) Icelandair. Deildin er hluti af sölu- og markaðssviði félagsins og annast sölustarf Icelandair um allan heim.

Aðalheiður hefur starfað hjá Icelandair síðan 2006 sem verkefnastjóri bæði í tekjustýringu og við rekstrargreiningar á sölu- og markaðssviði. Áður starfði hún sem birgðastjóri Hagkaupa, og verkefnastjóri hjá Högum.

Aðalheiður hefur lokið BS prófi í rekstrarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Hún er gift Starkaði Erni Arnarsyni og eiga þau 3 börn.