Elon Musk, forstjóri rafbílaframleiðandafyrirtækisins Tesla, tilkynnti síðastliðinn fimmtudag á stjórnarfundi að fyrirtækið yrði áfram skráð á markað. Þetta kemur fram í frétt Financial Times .

Margir fjárfestar fyrirtækisins telja ákvörðunina vera skynsamlega. Fyrir um það bil þremur vikum síðan tilkynnti Musk á Twitter-síðu sinni að hann hyggðist afskrá fyrirtækið af markaði. Svo virðist sem honum hafi nú snúist hugur.

"Ég trúi því að hagsmunum Teslu sé betur borgið með því að vera áfram skráð á markað," ritaði Musk í blogg-færslu á heimasíðu fyrirtækisins.

Sex stjórnarmenn í fyrirtækinu hafa lýst því yfir stuðningi við ákvörðunina. Musk segir að hann hafi komist að þessari niðurstöðu eftir viðræður við hluthafa og ráðgjafa frá Silver Lake, Goldman Sachs og Morgan Stanley þar sem rætt var um hvernig unnt væri að útfæra áætlunina.