Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur komið á fót málflutningsteymi til að starfa með Tim Ward QC að undirbúningi varnar í Icesave-málinu. Teymið er skipað sérfræðingum sem unnið hafa að málinu frá upphafi, hafa sérþekkingu á Evrópurétti og störfum EFTA-dómstólsins og lögmönnum sem hafa mikla reynslu af hagsmunagæslu fyrir ríkið eða beitt sér opinberlega gegn þeim samningum sem gerðir voru um lyktir málsins. Auk þess hefur verið leitað til virts fræðimanns í Evrópurétti um að veita aðalmálflytjanda og málflutningsteyminu sérfræðilega aðstoð eftir því sem á þarf að halda.

Í teyminu eiga sæti Kristján Andri Stefánsson, sendiherra í utanríkisráðuneytinu; Þóra M. Hjaltested, skrifstofustjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu; Jóhannes Karl Sveinsson hrl.; Einar Karl Hallvarðsson hrl. og ríkislögmaður; Kristín Haraldsdóttir, forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík og frv. aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn, auk Reimars Péturssonar hrl.

Tengiliður hópsins við forsætisráðuneytið er Páll Þórhallsson skrifstofustjóri og við fjármálaráðuneytið Hafdís Ólafsdóttir skrifstofustjóri.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að málflutningsteymið hafi aðgang að sérfræðingum á ýmsum sviðum og eftir því sem þörf krefur. Meðal annars hefur verið tryggður aðgangur að nokkrum sérfræðingum sem þekkja til málavaxta og eru tilbúnir til verka með stuttum fyrirvara. Þeir eru Dr. Miguel Poiares Maduro, prófessor við Flórens-háskóla, gestaprófessor við Yale-háskóla og frv. aðallögsögumaður við Evrópudómstólinn (advocate-general); Stefán Már Stefánsson prófessor, emeritus, fv. varadómari við EFTA-dómstólinn, og Dóra Guðmundsdóttir fv. aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn og fv. varadómari við EFTA-dómstólinn

Þessu til viðbótar hefur verið leitað til Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um að leggja til ýmsa útreikninga og tölfræðileg gögn og mun Sveinn Agnarsson forstöðumaður stofnunarinnar annast það fyrir hennar hönd.