Karl Wernersson þarf lögum samkvæmt að hætta sem framkvæmdastjóri Lyf og heilsu eftir að hann var dæmdur fyrir efnahagsbrot í Milestone-málinu svokallaða. Þetta kemur fram á vef ruv.is.

Karl á og rekur Lyf og heilsu, eina stærstu lyfjaverslunarkeðju landsins. Eignarhaldið er þó í gegnum röð félaga.

Karl var fyrir helgi dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að misnota aðstöðu sína hjá eignarhaldsfélaginu Milestone. Samkvæmt lögum um hlutafélög og einkahlutafélög mega stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað í tengslum við atvinnurekstur.

Ákvæðið gildir í þrjú ár frá því dómur fellur. Samkvæmt heimildum ruv.is þarf Karl því að hætta sem framkvæmdastjóri Lyf og heilsu. Hann er auk þess skráður í stjórn, varastjórn eða framkvæmdastjórn 13 annarra félaga og þarf því líka að láta af þeim störfum.