Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, segir að þingfundur sem átti að hefjast klukkan 10:30 í dag verði felldur niður. Þar átti að ræða fjárlagafrumvarpið og ráðherrar að sitja fyrir svörum um sína málaflokka.

„Fjárlagafrumvarpið átti að vera hér til umræðu í dag en það verður tekið út af dagskrá,“ segir Unnur Brá. „Þetta var dagskráin í dag og fundurinn fellur niður.“ Ekki liggur fyrir hvenær Alþingi fundar aftur.