Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í apríl 2017. Þar kemur fram að heildarfjöldi leigusamninga í apríl 2017 var 448 og fækkaði þeim um 23,7% frá apríl 2016. Hægt er að skoða tölurnar hér.

Breytingin milli ára á Höfuðborgarsvæðinu nam 31,3% fækkun en þinglýstir leigusamningar voru 400 í apríl 2016 en 275 árið eftir. Á Suðurnesjunum fækkaði leigusamningum um 11,8% eða úr 128 niður í 67.