Niðurstöður úr stofnmælingu botnfiska að haustlagi 2017 sýna að sumar fisktegundir eru í sögulegu hámarki en stofnstærð ýsu er í meðaltali, meðan aðrar eru í lágmarki. Stofnvísitala þorsks og gullkarfa eru þær hæstu síðan mælingar hófust árið 1996, en vísitala ýsu er nú nálægt meðaltali tímabilsins að því er haustrall Hafrannsóknarstofnunar sýna.

Mælingarnar á bak við niðurstöðurnar fóru þannig fram að togað var með botnvörpu á 375 stöðum frá 4. október til 9. nóvember allt niður á 1.500 metra dýpi, með tveimur skipum á vegum stofnunarinnar. Fleiri tegundir mælast í hæstu gildum, má þar nefna ufsa, keilu, löngu og gulllax, en hins vegar er hlýri og tindaskata meðal tegunda í sögulegu lágmarki.

Vísitala veiðistofns djúpkarfa hefur hækkað undanfarin ár eftir sögulegt lágmark en nýliðun er áfram mjög léleg. Vísitala veiðistofns grálúðu hefur hækkað jafnt og þétt frá árinu 2006 þegar hún var í lágmarki að því er fram kemur í skýrslu Hafrannsóknarstofnunar .

Stofnvísitölur margra tegunda, eins og ufsa, langlúru, skarkola, þykkvalúru, keilu, löngu, gulllax og litla karfa mældust háar og í mörgum tilfellum þær hæstu frá árinu 1996. Stofnar hlýra, tindaskötu og skrápflúru eru hinsvegar í sögulegu lágmarki.

Stofnmæling botnfiska að haustlagi (haustrall) fór fram í 21. sinn dagana 4. október til 9. nóvember sl. Rannsóknasvæðið var umhverfis Ísland allt niður á 1500 m dýpi. Alls var togað með botnvörpu á 375 stöðvum. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson RE og togarinn Ljósafell SU voru notuð til rannsóknarinnar.

Helsta markmið haustrallsins er að styrkja mat á stofnstærð botnlægra nytjastofna á Íslandsmiðum með sérstakri áherslu á djúpkarfa, grálúðu og aðra djúpfiska. Auk þess er markmiðið að fá annað mat, óháð aflagögnum, á stofnstærð þeirra nytjastofna sem Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum (marsrall) nær yfir, og safna upplýsingum um útbreiðslu, líffræði og fæðu tegundanna.

Niðurstöðurnar eru, samkvæmt fréttatilkynningu, mikilvægur þáttur árlegrar úttektar Hafrannsóknastofnunar á ástandi helstu nytjastofna við landið sem lýkur með veiðiráðgjöf í júní 2018.