Þingflokkur Vinstri grænna kom saman í Alþingishúsinu í morgun en þar var farið yfir þau óformlegu samtöl sem hafa átt sér stað um mögulega ríkisstjórnarmyndun.
Óformlegar viðræður Vinstri grænna við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk munu halda áfram í dag en samtölin eru þó ekki enn komin á það stig að formlegar viðræður séu á dagskrá að því er kemur fram á mbl.is .
Þá fundar þingflokkur Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, að fram kemur á Vísi.is. Bjarni Benediktsston, formaður flokksins, sagði í samtali við fréttamann rétt fyrir fundinn að viðræður flokkanna væru skammt á veg komnar en að til stæði að ræða forsendur mögulegs ríkisstjórnarsamstarfs þessara þriggja flokka á fundinum.
Viðræðurnar gætu orðið snúnar því fyrir liggur að Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, gerir kröfu um forsætisráðherrastól í þeirri ríkisstjórn og Framsóknarflokkurinn styður þá hugmynd. Sjálfstæðisflokkurinn gerir hins vegar líka tilkall til forsætisráðuneytisins.