Þrjú hótel eru áformuð við Kjörgarð á Laugavegi 59 í Reykjavík. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu. íbúðahótelið Reykjavík Residence stefnir að því að opna hótel á Hverfisgötu 78, en hótelið verður að hluta til í nýju bakhúsi sem snýr að Kjörgarði.

Félagið Vesturgarður, sem vinnur nú í því að endurbyggja Kjörgarð, áformar að byggja hótelíbúðir í nýbyggingu í portinu við Kjörgarð. Þá er félagið enn fremur að skoða að leigja íbúðir í Kjörgarði til ferðamanna. Einnig áforma eigendur ION hótelkeðjunnar að byggja hótel vestan við Kjörgarð.