Eigendur smábáta bíða nú með óþreyju eftir reglugerð um viðbótarheimildir í makríl, segir í frétt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda (LS). Þar er vísað til þess að í bráðabirgðaákvæði laga um stjórn fiskveiða er ákvæði um að úthluta skuli 2.000 tonnum af makríl til smábáta.

LS hefur lagt áherslu og ítrekað að reglugerðin verði gefin út sem fyrst.  Úthlutunarreglur taki til þeirra sem hafa fengið minna en 27 tonn úthlutað sbr. reglugerð 295/2017.  Fyrsta úthlutun verði 20 tonn og þegar búið er að veiða 80% af heimildunum geti menn fengið 35 tonna úthlutun.

Skilyrði annarra fyrir úthlutun úr pottinum er að þeir hafi veitt 80% af úthlutuðum heimildum.

Í fréttinni segir jafnframt að samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu „bíður reglugerðin undirritunar ráðherra sem er í sumarfríi til mánaðamóta sem virðist að vísu ekki stoppa aðrar reglugerðir frá afgreiðslu.“

Á síðustu vertíð var reglugerðin ekki gefin út fyrr en 6. september og fyrsta úthlutun fór fram 12. september sem var 10 dögum fyrir lok vertíðar.  Nú stóðu vonir til að hafa hana fyrr á ferðinni þannig að auðveldara sé að hefja veiðar strax og makríllinn er kominn í veiðanlegt magn á miðin, segir í fréttinni.

Veiðiheimildirnar eru einkum ætlaðar til aðila sem ekki höfðu tækifæri til að ávinna sér veiðireynslu á viðmiðunarárum.  Gegn greiðslu kr. 2,78 á hvert kíló verður hægt að fá makrílheimildir færðar til sín.

Uppfært klukkan 17:45: Samkvæmt upplýsingum úr Atvinnuvegaráðuneytinu hefur reglugerð um viðbótaheimildir í makríl - 2.000 tonn - verið send til birtingar í Stjórnartíðindum. Gildistaka hennar er 31. júlí. Þetta kemur fram á heimasíðu LS