Reist verða verða allt að 2.300 svokölluðum leiguheimilum á næstu fjórum árum í nýju almennu íbúðarkerfi sem nú er verið að taka upp hér á landi. Byggir hugmyndin á danskri fyrirmynd. Ríkissjóður, í gegnum Íbúðalánasjóð, veitir því í fyrsta sinn stofnframlög til byggingar á ódýru leiguhúsnæði.

„Að þeim tíma loknum verður metin þörf á áframhaldandi uppbyggingu félagslegs leiguhúsnæðis. Húsnæðissjálfseignarstofnanir, sveitarfélög og lögaðilar í eigu þeirra auk lögaðila sem uppfylla skilyrði til að fá félagsleg leiguíbúðalán Íbúðalánasjóðs munu geta reist ódýrar leiguíbúðir með 30% stofnframlagi frá ríki og sveitarfélögum og leigt þær út í langtímaleigu á verði sem er 20-30% lægra en markaðsverð á leigumarkaðnum í dag“ segir í fréttatilkynningu.

Í ávarpi Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðisráðherra á Grand hótel, þar sem áformin voru kynnt í morgun, kom meðal annars fram að stuðningur ríkisins verður 18% en sveitarfélaga 12%. Með honum fylgja skilyrði um að íbúðirnar skuli leigja út til fólks með meðaltekjur og undir.

Ekki hluti af félagslega húsnæðiskerfinu

„Kerfið er ekki hluti af félagslega húsnæðiskerfinu en lægri mánaðargreiðslur munu gera íbúum Leiguheimila kleift að safna fyrir innborgun á íbúð og einnig verða hagstæður valkostur fyrir fólk til langs tíma á leigumarkaði. Almenna íbúðafélagið, sem stofnað er af ASÍ og BSRB, er á meðal þeirra sem hyggjast byggja Leiguheimili í almenna íbúðakerfinu. Miðað við áætlað fermetraverð þá gæti 45 fm Leiguheimili á vegum ASÍ kostað um 100 þús. á mán. eða aðeins 69 þús. eftir greiðslu húsnæðisbóta. Slíkt leiguverð verður bylting fyrir fólk með meðaltekjur og undir á leigumarkaði“ kemur einnig fram í tilkynningunni.

Til að geta sótt um Leiguheimili mega tekjur leigutaka ekki vera yfir meðaltekjum í tveimur lægstu tekjufimmtungum. Þó er ekki hægt að segja upp leigusamningi ef tekjur fara yfir það eftir að samningur fari síðar yfir hámarkið. „Tekjumörkin fyrir eintakling í Leiguheimiliskerfinu eru í dag 395.750 kr. í mánaðartekjur en þegar um er að ræða hjón eða par í sambúð eru mörkin 554.083 kr. Fyrir hvert barn hækka mörkin um 98.917 kr. á mánuði. Þannig eru tekjumörkin fyrir einstakling með tvö börn 593.583 kr. og fyrir hjón/sambúðarfólk með fjögur börn 949.750 kr. Ný tekjumörk verða gefin út árlega.“

Einum og hálfum milljarði króna verður varið í stofnframlög ríkisins vegna byggingar Leiguheimila á árinu 2016. Alls gætu verið reistar íbúðir að verðmæti ríflega 8 milljarða króna með stuðningi þessa árs.