Í dag undirritaði Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, samning um fullnaðarhönnun rannsóknahúss sem er hluti af Hringbrautarverkefninu. Grímur Már Jónasson undirritaði samninginn fyrir hönd Corpus3, en það félag samanstendur af Corpus3 samanstendur af eftirtöldum fyrirtækjum: Basalt arkitektar, Hornsteinar arkitektar, Lota ehf og VSÓ ráðgjöf.

Kostnaðaráætlun verksins nam tæplega 670,9 milljónum króna, en tilboð Corpus3 nam 477.286.560 krónum, sem er um 71,1% af kostnaðaráætlun. Rannsóknahúsið er hluti af heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut.

Aðrar byggingar eru meðferðarkjarninn, sem er stærsta byggingin í uppbyggingu Hringbrautarverkefnisins, nýtt sjúkrahótel, sem verður tekið í notkun á árinu og bílastæða-, tækni- og skrifstofuhús. Hér má sjá myndband um áætlanirnar.

Svandís segir uppbygginguna forgangsmál

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir sameiningu allrar rannsóknastarfsemi Landspítala á einum stað muni gjörbreyta allri umgjörð á rannsóknastarfsemi spítalans. „Uppbygging heilbrigðisþjónustunnar er forgangsmál og nýtt rannsóknahús er þar mikilvægur áfangi,“ segir Svandís.

Grímur Már Jónasson hjá Corpus3 segir verkið ánægjulegt. „Og í senn krefjandi verkefni að hanna nýtt rannsóknahús Landspítala,“ segir Grímur Már. „Við höfum unnið að hönnun nýs meðferðarkjarna í Hringbrautarverkefninu og við nýtum alla þá reynslu og þekkingu sem við höfum aflað okkur í þvi verkefni við hönnun rannsóknahússins“.

Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri NLSH segir að með undirskriftinni í dag hafi stórum áfanga verið náð. „Nýtt rannsóknahús er ein af meginbyggingum í heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut,“ segir Gunnar. „Áætlanir NLSH eru þær að nýtt rannsóknahús verður tekið í notkun á árinu 2024 í samræmi við fjármálaáætlun“.

Páll Matthíasson forstjóri Landspítala kallar nýja rannsóknahúsið  hjartað í því uppbyggingu sjúkrahúsins við Hringbraut.
„Í rannsóknahúsinu verða þannig allar rannsóknastofur Landspítala, lífsýnasöfn og Blóðbankinn,“ segir Páll.

„Þessi starfsemi er í dag á meira en 10 stöðum í borginni. Húsið verður algjör bylting í aðstöðu fyrir starfsfólk og fjölbreyttar vísindarannsóknir og við bíðum eftir því með mikilli eftirvæntingu“.

Í fréttatilkynningu um undirritunina segir að með tilkomu rannsóknahúss verði einnig mikil samlegðaráhrif við Háskóla Íslands, en háskólinn mun reisa nýtt hús heilbrigðisvísindasviðs sem verður tengt rannsóknahúsinu.