Fulltrúar Neytendastofu fóru í  eftirlitsferð í sérvöruverslanir í Kringlunni í byrjun júlí til að skoða hvort verðmerkingar inni í verslunum sem og í sýningargluggum væru sýnilegar. Á vef Neytendastofu segir að samkvæmt lögum og reglum eigi verslunareigendur að hafa verðmerkingar skýrar og vel sýnilegar, hvort sem það er inni í verslun eða í sýningarglugga. Farið var í 108 verslanir og af þeim voru 74 með sýningarglugga fyrir vörur sínar.

„Flestar verslanir voru með verðmerkingarnar í lagi.  Tíu verslanir voru ekki með verðmerkingar í lagi. Í verslunum Hygeu, Indiska, Kiss,  Morrow, Mýrinni, Zik Zak, Ígló og Auganu voru óverðmerktar vörur í sýningargluggum og hjá Blómabúðinni Kringlan, Islandia, Morrow og Hygeu voru vörur óverðmerktar í búðinni. Hygea og Morrow voru einu búðirnar með óverðmerktar vörur bæði í glugga og inni í verslun. Útsala var að byrja í júlí í Kringlunni og gæti það útskýrt vel verðmerktar verslanir. Samtals 10 verslanir fá því bréf til áminningar um að laga verðmerkingar í verslunum sínum, eða  um 10% þeirra verslana sem skoðaðar voru. Þetta er gríðarleg framför frá skoðun sem síðast var gerð mánaðarmót nóvember og desember 2010 þar sem 57 verslanir voru ekki í lagi,“ segir á vef Neytendastofu.

Neytendastofa vill að að verðmerkingar í sýningargluggum verði jafn sjálfsagður hlutur og verðmerkingar í versluninni sjálfri, enda sé það allra hagur og sjálfsagður réttur neytenda.