Tryggingamiðstöðin hf. (TM) tilkynnti 22. júní 2018 að félagið hefði lagt fram skuldbindandi kauptilboð í alla hluti í Lykli fjármögnun hf. og 6. júlí 2018 tilkynnti TM að seljandi hlutanna, Klakki ehf., hafi ákveðið að hefja einkaviðræður við TM um kaupin. Fjallað var um málið í Viðskiptablaðinu .

Samkomulag hefur nú orðið með aðilum um að falla frá viðræðunum og verður því ekki af kaupum TM á umræddu fyrirtæki.