Árið 2017 var þokkalegt hjá fiskimjölsverksmiðjum Síldarvinnslunnar hvað magn áhrærir en verð á afurðum þeirra var hins vegar lágt, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Samtals tóku verksmiðjurnar þrjár (í Neskaupstað, á Seyðisfirði og í Helguvík) á móti 196.697 tonnum af hráefni á árinu.

Til samanburðar má geta þess að á árinu 2016 tóku þær á móti 131.460 tonnum, 259.394 tonnum árið 2015, 161.168 tonnum árið 2014 og 206.074 tonnum árið 2013.

Það eru ekki síst loðnuvertíðirnar sem ráða því hve hráefni verksmiðjanna er mikið á ári hverju. Sem dæmi má nefna að loðnuvertíðir áranna 2016 og 2014 voru lélegar og þá kom lítið í hlut verksmiðjanna.

Nánar má lesa um móttekið hráefni hverrar verksmiðju á vef Síldarvinnslunnar.