Samkomulag náðist í dag á milli tæplega 50 þátttökuríkja WTO í viðræðum um útvíkkun svokallaðs upplýsingatæknivörusamnings (ITA-samningsins) um niðurfellingu tolla á rúmlega 200 upplýsingatæknivöruflokkum. Kemur þetta fram í frétt á vefsíðu fastanefndar Íslands í Genf.

Stefnt er að því að samningurinn taki gildi 1. júlí 2016 og falla tollar strax niður í langflestum vöruflokkunum en fyrir sumar vörur verða tollaniðurfellingar í fjórum áfangum til ársins 2019 þegar samningurinn kemst að fullu til framkvæmda.

Aðilar að samkomulaginu eru m.a. ESB, Bandaríkin, Kína, Kanada, Japan, Sviss, Noregur auk Íslands. Samningurinn er fyrsti samningur sem tengist WTO í 18 ár sem fjallar um tollaniðurfellingar.

Á árunum 2012 og 2013 fluttu íslensk fyrirtæki út vörur, s.s. rafeindavogir, röntgentæki og ýmis fjarskiptatæki, að verðmæti samtals níu milljarða króna sem njóta munu tollfríðinda samkvæmt samningnum, að því er segir í fréttinni.