Í febrúar síðastliðnum tók Tómas Ingason við stöðu framkvæmdastjóra viðskiptasviðs WOW air en hann hafði gegnt álíka stöðu hjá flugfélaginu um nokkurra mánaða skeið árið 2014. Þá var honum sagt upp störfum en þrátt fyrir þau starfslok þá réði Tómas sig til starfa á ný hjá WOW air. Tómas hefur nú en á ný látið af störfum hjá flugfélaginu. Þetta kemur fram á vef Túrista .

Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi flugfélagsins, mun annast stjórn sölu- og markaðsmála flugfélagsins.