Sigla ehf, félag Tómasar Kristjánssonar, stjórnarmanns í Sjóvá, seldi alla hluti sína í tryggingafélaginu fyrir rúmar 470 milljónir króna, en fyrir söluna var félagið 17. stærsti hluthafinn í Sjóvá.

Sölugengið var 17,8 krónur á hvert hlut, en sama dag keypti annað félag í eigu Tómasar, Gani, hluti í félaginu fyrir 276 milljónir króna, á sama gengi. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu .