Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi að innkalla þurfi 5.450 Yaris, Corolla, Avensis og Lexus SC430 bifreiðar af árgerðum 2003-2008. Þetta kemur fram á vefsíðu stofnunarinnar .

Þar kemur fram að ástæða innköllunarinnar sé galli í öryggispúðum, þar sem röng hleðsla í drifbúnaði öryggispúðanna geti rifið gat á drifbúnaðinn sjálfan sem valdi því að púðinn blási ekki rétt út við árekstur og virkni hans verði ekki eins og til er ætlast.

Viðskiptablaðið greindi frá því í síðustu viku að þúsundir bíla keyrðu um götur Íslands með gallaða öryggispúða, en yfir 34 milljónir bíla um allan heim hafa verið innkallaðar vegna gallans. Átta dauðsföll í bifreiðum Honda hafa verið rakin beint til loftpúðana sem framleiddir eru af japanska framleiðandanum Takata.

Toyota á Íslandi tilkynnti einnig í maí innköllun á yfir 4.300 bílum, en í síðustu vikum var ekki byrjað að kalla inn einn einasta. Samtals hefur fyrirtækið því tilkynnt innköllun á 9.750 bílum.

Innköllunin er gerð á heimsvísu og segir á vef Neytendastofu að ér á landi gætu verið Toyota bílar af gerðunum Tundra og Sequoia framleiddir í Bandaríkjunum með þessari gerð af öryggispúðum. Eigendur slíkra bíla geta snúið sér til næsta Toyota þjónustuaðila sem getur aflað upplýsinga um hvaða Toyota bílar framleiddir í Bandaríkjunum eru í þessari innköllun.

Eigendum verða send bréf vegna innköllunarinnar.