Tryggingar og ráðgjöf býður nú upp á aukna þjónustu – Tryggingavaktina, sem er nýjung á Íslandi. Hlutverk Tryggingavaktarinnar er að meta vátryggingarþörf viðskiptavina sinna, hvort sem um ræðir eigna- eða persónutryggingar og tryggja þeim ódýrustu og jafnframt bestu tryggingarnar hverju sinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en þar kemur einni fram að Tryggingavaktin muni setja sig í samband við viðskiptavini með reglubundnu millibili til að endurmeta tryggingaþörf þeirra og iðgjöld.

,,Við höfum brugðist við óskum fjölmargra viðskiptavina fyrirtækisins að bjóða upp á slíka þjónustu og sníða tryggingar að þörfum hvers og eins,“ segir Þorsteinn Pétursson, markaðsstjóri Tryggingavaktarinnar, í tilkynningu.

„Tryggingar eru breytilegar og það þarf að skoða þær með reglubundnum hætti. Þetta ferst fyrir hjá mörgum og oft er tryggingaumhverfið hálgerður frumskógur í huga fólks. Tryggingavaktin fer yfir vátryggingar hjá viðskiptavinum sínum og sér til þess að þeir séu rétt tryggðir borgi lægstu iðgjöldin sem bjóðast hverju sinni“

Þorsteinn segir að verði viðskiptavinir fyrir tjóni muni Tryggingavaktin gæta réttar þeirra gagnvart vátryggingafélaginu.

„Viðskiptavinir eru því hvattir til að leita alltaf fyrst til Tryggingavaktarinnar ef tjón verður. Tryggingavaktin aðstoðar þannig viðskiptavini að fá greiddar bætur. Tryggingavaktin er í samstarfi við reynda lögfræðinga hjá lögmannsstofunni Lagarök sem veita viðskiptavinum álit þeim að kostnaðarlausu,“ segir Þorsteinn.

Fram kemur að Tryggingar og ráðgjöf er stærsta vátryggingarmiðlun Íslands með yfir 40 þúsund viðskiptavini og hefur áralanga reynslu á sviði tryggingarmála.