Tulipop bangsi er eitt þeirra leikfanga sem verður sett á markað undir merkjum íslenska hönnunarfyrirtækisins Tulipop, í samstarfi við bandaríska leikfangaframleiðandann Toynami.

„Um er að ræða Tulipop bangsa, sparibauk og litlar vínyl fígúrur sem koma í svokallaðri happaöskju (e. Blind box)," segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

„Fjóra helstu íbúa Tulipop eyjunnar, sem Íslendingar eru farnir að þekkja vel, verður nú hægt að fá sem bangsa, þ.e. hugljúfa sveppastrákinn Bubble, hugrökku sveppastelpuna Gloomy, prímadonnuna Miss Maddy og skógarskrímslið Fred.

Stórir og litlir bangsar

Í boði verða bæði stórir og litlir bangsar og er þetta vara sem Tulipop aðdáendur hafa lengi beðið eftir. Íbúar Tulipop eyjunnar verða einnig fáanlegir sem litlar „vinyl” figúrur.

Fígúrurnar koma í svkölluðum happaöskjum en slíkar öskjur eru mjög vinsælar í Bandaríkjunum. Ekki er gefið upp hvaða karakter er í öskjunni hverju sinni og því kemur á óvart hvað leynist í henni.

Markaðssókn til Bandaríkjanna

Einn vinsælasta karakter Tulipop eyjunnar, vinalega skógarskrímslið Fred, verður einnig hægt að fá sem sparibauk.

Nýja vörulínan er liður í markaðssókn Tulipop í Bandaríkjunum en fyrirtækið hefur samið við bandaríska leikfangaframleiðandinn Toynami um rétt til afnota á hönnun Tulipop ævintýraheimsins.

Í byrjun febrúar fara vörurnar í sölu í um 100 verslunum í Bandaríkjunum. Þá mun Tulipop opna skrifstofu í New York í byrjun febrúar og fylgja vörulínunni eftir með öðrum vörum Tulipop."

Verða vörurnar til sölu á Íslandi hjá öllum helstu söluaðilum Tulipop á Íslandi, þar má telja Epal, Hrím, Dúka, Eymundsson og í vefverslun fyrirtækisins á tulipop.is.

„Vörulínan hefur verið lengi í þróun og það var frábært að fá reyndan leikfangaframleiðanda með okkur í lið. Við erum afar ánægðar með útkomuna og vonumst til að hún gleðji alla Tulipop aðdáendur," er haft eftir Signý Kolbeinsdóttur, yfirhönnuði Tulipop í tilkynningunni.