Verslunarmiðstöðin Kringlan býðst í sumar til þess að sækja erlenda ferðamenn í miðbæ Reykjavíkur og skutla þeim í Kringl­una, þeim að kostnaðarlausu. Er þetta þriðja árið í röð sem Kringlan býður upp á þessa þjónustu, og fær þann­ig fleiri ferðamenn til þess að koma í verslanirnar.

Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, seg­ ir að fyrirkomulagið hafi reynst vel. Í fyrstu hafi aðeins verið farnar ferð­ ir á virkum dögum en helgarferðir hafi bæst við síðasta sumar. Þá hefur ferðum fjölgað í ár og alls eru farnar fjórar ferðir á dag

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér .