Íslands og Japan hafa undirritað tvísköttunarsamning sín á milli að því er fram kemur á vef stjórnarráðsins. Samningurinn, sem nær til tekjuskatta, var undirritaður af Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra fyrir hönd Íslands og Yasuhiko Kitagawa sendiherra Japans á Íslandi fyrir hönd Japans, í Reykjavík þann 15. janúar síðastliðinn.

Kemur vonandi til framkvæmda eftir ár

Helstu efnisatriði samningsins eru þau að enginn afdráttarskattur er af arði ef félagið sem móttekur arðinn á a.m.k. 25% eignarhlutdeild í félaginu sem greiðir arðinn, að móttakandi arðsins sé raunverulegur eigandi og að hann hafi átt hlutabréf í félaginu í a.m.k. sex mánuði áður en arður er greiddur út eða sé í eigu lífeyrissjóða að nánar tilgreindum skilyrðum.

Samið var um 5% afdráttarskatt af arði ef félagið sem móttekur arðinn á a.m.k. 10% í félaginu sem greiðir arðinn, að móttakandi arðsins sé raunverulegur eigandi og hafi átt hlutabréf í félaginu í a.m.k. sex mánuði áður en arður er greiddur út. Að öðrum kosti er afdráttarskattur af arði 15%.

Enginn afdráttarskattur er af vöxtum eða þóknunum. Samkvæmt samningnum er frádráttaraðferð beitt í því skyni að koma í veg fyrir tvísköttun og jafnframt er að finna ákvæði um aðstoð við innheimtu skatta. Í samningnum er að finna sérstakt ákvæði sem á að koma í veg fyrir misneytingu ívilnana sem samningurinn veitir.

Á næstu mánuðum munu stjórnvöld vinna að fullgildingu samningsins. Vonast er til að samningurinn komi til framkvæmda 1. janúar 2019.