Fiskafli íslenskra skipa í nóvember var 77.902 tonn sem er 1% meiri afli en í nóvember 2016. Botnfiskaflinn nam rúmum 44 þúsund tonnum og jókst um 12%.

Hagstofa Íslands greinir frá.

Af botnfisktegundum veiddist sem fyrr mest að þorski eða rúm 26.700 þúsund tonn sem er svipaður afli og í nóvember 2016. Tæp 5.700 tonn veiddust af ufsa sem er ríflega tvöfalt meiri afli en á sama tíma í fyrra.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 31.600 tonnum og samanstóð af síld og kolmunna. Síldaraflinn nam tæpum 24 þúsund tonnum og dróst saman um 25% en rúm 7.700 tonn veiddust af kolmunna sem er nær tvöfalt meira en í nóvember 2016.

Afli flatfisktegunda nam 1.350 tonnum og dróst saman um 12%. Skel- og krabbadýraafli jókst hins vegar um 35%, nam 735 tonnum samanborið við 543 tonn í nóvember 2016.

Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá desember 2016 til nóvember 2017 var 1.166 þúsund tonn sem er 10% aukning miðað við sama tímabil ári fyrr.

Verðmæti afla í nóvember metið á föstu verðlagi var 5,4% meira en í nóvember 2016.