Fóðurblandan hefur ráðið Úlf Blandon sem framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs félagsins frá og með 1.júní síðastliðnum.
Úlfur hefur starfað hjá fyrirtækinu sem viðskiptastjóri um nokkurt skeið, en tók við sem framkvæmdasjóri fyrr í sumar.
Úlfur er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur víðtæka reynslu af sölu- og markaðsmálum frá fyrri störfum sínum. Hann mun koma til með að leiða áframhaldandi uppbyggingu á sölu og markaðssviði Fóðurblöndunnar.