Iceland Construction ehf. (IC), áður Ístak, hefur í dag sagt upp ráðningarsamningum við alla starfsmenn sína í Noregi, samtals um 140 manns, en um helmingur þeirra eru Íslendingar.

Segja þeir í tilkynningu þetta gert í varúðarskyni vegna erfiðrar rekstrarstöðu.

„Á næstu dögum verður unnið að endursamningum við verkkaupa og er vonast til að hægt verði að draga uppsagnirnar til baka," segir í tilkynningunni.

Vinna að því að klára eitt verkefni

„Félagið vinnur nú að einu verkefni í Noregi og er um helmingur starfsmanna Íslendingar og um helmingur Pólverjar," segir í tilkynningunni.

„Verkefni IC í Noregi felst í byggingu fimm vatnsaflsvirkjana í Tosbotn í Norðurlands-fylki, en um 80% af verkinu er nú lokið. Afkoma verkefnisins hefur verið undir væntingum og er það rekið með tapi."

Jón Steingrímsson framkvæmdastjóri IC sem er sá hluti gamla Ístak sem ekki var seldur í kjölfar gjaldþrots móðurfélagsins, danska verktakafyrirtækisins Pihl & Søn.

„Starfsmenn IC verða áfram við störf í Tosbotn þar til framhald verkefnisins skýrist betur,“ er haft eftir Jóni í tilkynningunni, en norskum vinnumálayfirvöldum hefur verið tilkynnt um uppsagnirnar.

„Uppsagnirnar eru gerðar í varúðarskyni. Við erum í viðræðum við verkkaupa um endurskoðun samninga. Á næstu dögum kemur í ljós hvort hægt verði að afturkalla uppsagnirnar, eins og við vonumst til."

Nánari upplýsingar um félagið:

„Landsbankinn eignaðist IC, áður Ístak hf., þegar móðurfélag þess, danska verktakafyrirtækið Pihl & Søn var tekið til gjaldþrotaskipta í lok ágúst 2013," segir í tilkynningunni.

„Þegar umsvifin voru mest á árunum 2012–2014 störfuðu um 450 starfsmenn að verkefnum félagsins í Noregi. Haustið 2013 var félagið auglýst til sölu, án árangurs.

Árið 2015 var stærsti hluti félagsins seldur undir nafninu Ístak hf. en IC hélt áfram starfseminni í Noregi. Rekstur IC í dag er Ístaki óviðkomandi.

IC hefur undanfarið unnið að því að ljúka verkefnum sínum og er verkefnið í Tosbotn síðasta verkefni félagsins."