Um áttatíu fagfjárfestar og þar af ellefu einstaklingar eiga innstæður í Straumi.
Fram kom í máli viðskiptaráðherra, Gylfa Magnússonar, á Alþingi í dag að upphæð innstæðnanna gætið legið nálægt 60 milljörðum íslenskra króna.
Hann sagði að á þessari stundu væri ekkert sem benti til annars en að bankinn ætti eignir á móti. Því væri ekkert sérstakt útlit fyrir að þetta félli á ríkið.
Það væri í höndum skilanefndar Straums að sjá til þess að eignir Straums yrðu sem best nýttar.