Umsækjendur sem óskuðu aðstoðar Umboðsmanns skuldara (UMS) vegna fjárhagsvanda  fjölgaði um 6,5% á árinu 2018 miðað við árið á undan. Alls bárust 1.397 umsóknir til embættisins 2018 á móti 1.311 umsóknum árið 2017. Mest fjölgaði umsækjendum sem voru á aldrinum 18-29 ára eða úr 23% árið 2017 í 27,3% árið 2018. Umboðsmaður skuldara greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Áhyggjuefni að fjölga skuli í hópi ungra umsækjenda

Í tilkynningunni segir að Umboðsmaður skuldara hafi áður vakið athygli á vaxandi fjölda ungs fólks í vanda vegna töku skyndilána en UMS skilgreinir skyndilán sem lán sem tekin eru á vefsíðum eða með smáforritum í gegnum farsíma. Lánin eigi það sameiginlegt að einfalt er að sækja um þau og þau séu afgreidd afar skjótt. Bæði geti verið um að ræða lán sem tekið er samhliða kaupum á vöru eða þjónustu en einnig lán þar sem ákveðin fjárhæð er lögð inn á reikning lántaka. Á árinu 2018 hafi hlutfall skyndilána verið 22% af heildar fjárskuldbindingu þessara einstaklinga og sé það verulegt áhyggjuefni að enn skuli fjölga í hópi umsækjenda á aldrinum 18-29 ára.

Neysluhvetjandi auglýsingar

Einstaklingar sem leiti sér aðstoðar eiga það sameiginlegt að hafa tekið fjölda skyndilána á stuttum tíma og komið sér í töluverðar skuldir. Markaðssetning skyndilána sé öflug og áberandi og sé beint í miklum mæli að yngri kynslóðinni með áherslu á auðvelt aðgengi. Að mati UMS er mikilvægt að kannað verði hvort hægt sé að setja skorður við því hvernig þessi þjónusta er markaðssett. Benda má á að í Noregi hafa t.d. verið settar strangar reglur um hvernig auglýsa má þjónustu sem þessa.

Leggja til miðlægan skuldagrunn

Ljóst sé að einstaklingar geti auðveldlega tekið mörg lán á stuttum tíma hjá ólíkum þjónustuaðilum og þannig skuldsett sig langt umfram greiðslugetu. Með því að skrá skuldastöðu einstaklinga væri hægt að koma í veg fyrir að sami einstaklingur taki mörg lán hjá ólíkum aðilum með ofangreindum afleiðingum. Með aðgangi að slíkri miðlægri skrá gætu þeir sem veita skyndilán betur metið lánshæfi umsækjenda eins og kveðið er á um í lögum um neytendalán. Slík skráning myndi auk þessi veita yfirsýn yfir umfang útlána af þessu tagi sem ekki er fyrir hendi í dag.

Fræðsla um fjármál þarf að byrja snemma

Dæmin sýni að þeir sem taki skyndilán séu í meiri áhættu að lenda í alvarlegum greiðsluerfiðleikum. Tryggja þurfi að einstaklingar hafi forsendur til að taka upplýstar ákvarðanir í fjármálum. Með samvinnu mennta- og velferðarkerfis, fjármálafyrirtækja og fleiri aðila þurfi að tryggja samræmda fjármálafræðslu barna og ungmenna og það þurfi að byrja snemma. Sameiginlegt markmið ætti að vera að koma í veg fyrir að ungt fólk hefji sitt fjárhagslega sjálfstæða líf með neysluskuldir á bakinu.

Síðustu misseri hafi Umboðsmaður skuldara lagt aukna áherslu á fræðslumál og útgáfu fræðsluefnis og einn liður í því er ný vefsíða embættisins sem opnuð verður í dag 25. mars. Á  vefsíðunni verður auk upplýsinga um þjónustu embættisins að finna ýmsan fróðleik um fjármál einstaklinga.