Fórum íslenskum sjávarútvegsfyrirtækum hefur verið veitt leyfi til að selja vörur sínar til Hvíta-Rússlands þar sem að þau hafa áður verið á tímabundnum bannlista Tollabandalags Rússlands, Hvíta-Rússlands og Kasakstans. Þessu greinir DV.is frá.

Haft er eftir framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum að hvítrússneskur stórkaupandi á íslenskum sjávarafurðum hafi gert íslenskum útflytjendum auðveldara fyrir. Fyrirtækin eru VSV, Ísfélag Vestmannaeyja, Skinney-Þinganes og Huginn VE í Vestmannaeyjum.

Sjá einnig frétt á vb.is.