Bandaríska flugfélagið United Airlines bætist í hóp íslensku flugfélaganna Icelandair og Wow air í að bjóða upp á flug milli New York borgar og Keflavíkur í vor. Flugið sem hefst 23. maí næstkomandi að því er mbl segir frá mun fljúga til Newark flugvallar, en um er að ræða sumarflug sem verður í boði til 4. október.

Flugið verður um miðjan dag sem er á öðrum tíma en íslensku flugfélögin fljúga, sem fljúga ýmist eldsnemma möorguns eða síðdegis til borgarinnar. Verður brottför frá Keflavík klukkan 11:55 og lending í Newark klukkan 14:05.

Sölustjóri United Airlines fyrir Bretland, Írland og Ísland segir flugið meðal annars geta hentað vel þeim sem ferðast í viðskiptaerindum því boðið er upp á Polaris viðskiptafarrými. Í þeim er hægt að leggja sætin flöt, en flogið er með Boeing 757-200 vélum.