Helgi Þórhallsson hefur verið ráðinn forstjóri United Silicon hf. frá og með 15. apríl n.k. og Þórður Magnússon var ráðinn rekstrarstjóri fyrirtækisins. þann 1. desember síðastliðinn.

Í tilkynningu kemur fram að Helgi er efnaverkfræðingur frá Norwegian Technical University í Þrándheimi, í Noregi og hóf fljótlega að námi loknu störf hjá Elkem. Helgi gegndi stöðu framkvæmdastjóra kísilverksmiðjunniar Bjölvefossen í Noregi árin 1994-1999, en á starfsferli sínum hefur hann komið að mörgum kísilverkefnum allan heim m.a. í Kína og Inónesíu fyrir utan Noreg og Ísland. Samtals á Helgi að baki 35 ára starfsreynslu í kísiliðnaðinum.

Fyrir í yfirstjórn United Silicon hf. eru þeir Þórður Magnússon og Helgi Björn. Helgi Björn er einn af frumkvöðlum verkefnisins United Silicon hf. og gegnir stöðu yfirverkfræðings hjá félaginu.

Þórður er Dr. Ing, Material Science frá Norwegian University of Science and Technology. Þórður gegndi áður stöðu framleiðslustjóra í járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga og á að baki 13 ára starfsreynslu hjá félaginu.

United Silicon hf. hefur auk hinna framangreindu ráðið til tímabundinna starfa eftirtalda aðila: Friedhelm Bramsiepe, fyrrverandi forstjóra RW Silicium í Þýskalandi, Roberto Carlesso, fyrrverandi framleiðslustjóra FerroAtlantica í Frakklandi, og Steven Pragnell, fyrrverandi framleiðslustjóra Simcoa í Ástralíu.

Magnús Garðarsson, fráfarandi framkvæmdastjóri og stærsti hluthafi í United Silicon hf., segir félagið vera afar lánsamt að hafa tryggt sér starfskrafta þessara reynslumiklu manna úr kísiliðnaðinum. „Hjá United Silicon hf. er nú saman komin meira en 150 ára reynsla í kísilframleiðslu og stjórn félagsins og hluthafar horfa bjartsýnir fram á veginn,” segir Magnús.