Undanfarnar tvær vikur hefur vinnsla á makríl og síld verið samfelld í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Í verinu hefur verið unnið á þrískiptum vöktum en nú þegar skólafólk hverfur frá störfum verður vaktafyrirkomulaginu breytt.

Frá þessu segir á heimasíðu fyrirtækisins.

Þrjú skip sjá um að afla fiskiðjuverinu hráefnis. Það eru Beitir NK, Börkur NK og Bjarni Ólafsson AK. Veiðarnar hafa gengið vel að undanförnu og er algengt að hvert skip liggi í höfn í sólarhring að lokinni löndun svo tryggt sé að hráefnið sem berst til vinnslu sé sem ferskast. Þá er í sama tilgangi lögð áhersla á að skipin komi einungis með 600-800 tonn að landi úr hverri veiðiferð. Mikilvægt er að veiðunum sé stýrt svo þær séu í sem bestum takti við vinnsluna og afurðirnar nái sem mestum gæðum, segir þar.

Bæta tækjabúnað

Enn er verið að bæta við tækjabúnað fiskiðjuversins í þeim tilgangi að auka afköst þess. Um þessar mundir er verið að taka í notkun enn eina vinnslulínuna og tvo nýja frystiskápa.

Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu, segir í fréttinni að framleiðslan gangi vel.Makríllinn sem berst að landi sé að jafnaði stærri en á fyrri vertíðum og segja megi að smámakríl vanti nánast algjörlega í aflann. Þá sé síldin sem veiðist einnig stór og góð. Jón segir að veruleg áta hafi oft verið í makrílnum hingað til og það hafi áhrif á vinnsluna.

Lokið var við að landa 670 tonnum af makríl úr Berki NK í morgun og þá hófst löndun úr Bjarna Ólafssyni AK sem er með rúmlega 600 tonn. Börkur liggur nú í höfn og bíður þess að fá að hefja veiðar á ný. Beitir NK er á miðunum og er gert ráð fyrir að hann komi til löndunar um hádegi á morgun.