Forsætisráðherra hefur falið Unni Brá Konráðsdóttur að vera verkefnisstjóri vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Unnur Brá mun hefja störf í forsætisráðuneytinu 1. apríl næstkomandi. Hún verður ráðin sem aðstoðarmaður ríkisstjórnar.

Í áætlun sem forsætisráðherra hefur kynnt um fyrirkomulag stjórnarskrárvinnu næstu árin segir: „Verkefnisstjórinn hefur heildaryfirsýn yfir verkefnið og tengir saman helstu aðila sem að því koma. Hann er málsvari verkefnisins og leitast við að tryggja skilvirkan framgang þess. Hann starfar í umboði forsætisráðherra, er tengiliður milli ráðherra og sérfræðinganefndar og nýtur aðstoðar skrifstofu löggjafarmála í forsætisráðuneytinu.“ Framangreind sérfræðinganefnd verður sett á laggirnar í samráði þeirra flokka sem fulltrúa eiga á Alþingi.

„Það er mikill akkur í því að fá reynslumikinn lögfræðing með bakgrunn úr stjórnmálum, sem þar að auki nýtur trausts þvert á flokka og í samfélaginu, til að stýra þessu vandasama verkefni næstu árin, “ er haft eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. „Markmiðið er að ná fram áföngum við heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar á þessu kjörtímabili og því næsta. Við munum leita allra leiða til að sjónarmið almennings vísi veginn í þessari vinnu og sem flestir geti tekið þátt í að móta breytingartillögur. Framtíðarsýnin er að stjórnarskráin endurspegli sem best sameiginleg grunngildi þjóðarinnar og renni traustum stoðum undir lýðræðislegt réttarríki þar sem vernd mannréttinda er tryggð,“ segir Katrín.

Unnur Brá lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Hún tók sæti á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 2009 en hafði áður meðal annars starfað sem sveitarstjóri Rangárþings eystra. Unnur Brá gegndi formennsku í allsherjarnefnd 2013-2016 og var forseti Alþingis árið 2017. Nú situr hún á Alþingi sem varaþingmaður.

Unnur Brá mun hefja störf í forsætisráðuneytinu 1. apríl næstkomandi. Hún verður ráðin sem aðstoðarmaður ríkisstjórnar, sbr. 22. gr. laga um Stjórnarráð Íslands.