Ekki hefur verið tekin ákvörðun um tímasetningu væntanlegs uppboðs Seðlabanka Íslands á svonefndum aflandskrónum, en þetta kemur fram í Morgunblaðinu .

Uppboðsleiðin var kynnt á kynningu stjórnvalda um afnám fjármagnshafta í sumar og er mikilvægur liður í þeirri vinnu. Þá kom fram að uppboðið færi fram í október.

Greint er frá því í Morgunblaðinu að þær upplýsingar hafi fengist í Seðlabankanum að uppboðið væri í undirbúningi og að því loknu verði fyrirkomulag og frekari tímasetningar kynntar.