Samkvæmt nýrri rannsókn frá Bandaríkjunum, sem The Economist segir frá , hefur upplifun fólks af vinnu farið jafnt og þétt batnandi frá árinu 1950. Framfarirnar skiptast þó ansi ójafnt milli kynja, en upplifun kvenna hefur batnað meira en karla á alla 6 mælikvarða, og er að öllu leyti betri en 1950.

Konur upplifa nú meiri hamingju og tilgang í vinnunni en karlar, en einnig meiri þreytu, streitu, sársauka og depurð. Karlmenn upplifa hinsvegar minni hamingju en 1950, minni tilgang, og meiri streitu. Þeir upplifa þó einnig minni þreytu, minni sársauka, og minni depurð.

Ýmislegt kann að skýra þessa þróun, og ljóst er að vinnumarkaður kvenna hefur breyst meira en karla síðan 1950. Konur gegna stjórnunarstöðum og öðrum ábyrgðarstöðum í meira mæli, á meðan karlmenn taka í auknum mæli að sér þjónustustörf.

Annar mikilvægur þáttur er ólík viðhorf kynjanna gagnvart sumum tegundum vinnu. Á meðan konur í hefðbundnum iðnaðarstörfum upplifa hamingju undir meðaltali kvenna, upplifa karlar í slíkum störfum meiri hamingju en meðal vinnandi karl.

Ýmsir þættir gætu haft áhrif á áreiðanleika rannsóknarinnar. Kynin gætu sinnt ólíkum störfum innan þeirra flokka sem rannsóknin sundurliðar eftir. Eðli ákveðinna starfa gæti hafa breyst á þeim 70 árum sem rannsóknin nær yfir.

Rannsóknin gefur þó góða vísbendingu um almenna þróun upplifunar fólks af vinnumarkaði, þá sérstaklega ólíka þróun milli kynjanna.