Um 30 einstaklingar missa vinnuna hjá lyfjafyrirtækinu Actavis á Íslandi vegna skipulagsbreytinga. Frá þessu er greint á vef Vísis.

Teva, móðurfélag Actavis, ætlar að leggja niður skráningarstarfsemi fyrir eigin vörumerki á Íslandi. Starfsfólki Actavis hér á landi var greint frá þessu í gær. Skipulagsbreytingarnar eru liður í endurskipulagningu á rekstri félagsins á heimsvísu.

Breytingarnar taka gildi í áföngum fram á haust, en búist er við því að síðustu uppsagnir vegna þessarar endurskipulagningar verði í nóvember.

Að loknum breytingunum verða um 40 manns enn starfandi við lyfjaskráningu hér á landi á vegum félagsins, að mestu vegna starfsemi dótturfélagsins Medis, sem selur lyf- og lyfjahugvit til annarra lyfjafyrirtækja. Alls starfa tæplega 300 manns hjá Actavis hér á landi og vinna flestir við lyfjaþróun og hjá Medis.