Úrvalsvísitala hlutabréfa hækkaði um 0,18% í dag og endaði í 1.729,54 stigum. Frá áramótum hefur hún hækkað um 31,93%. Aðalvísitala skuldabréfa hækkaði um 0,53% en hún hefur hækkað um 10,09% frá áramótum.

Gengi hlutabréfa Össurar hækkaði mest á markaði í dag eða um 2,77% og námu viðskipti bréfanna rúmum 33 milljónum. Einnig hækkuðu bréf Eikar fasteignafélags um 1,47% og Sjóvá um 1,66%. HB Grandi og Icelandair Group lækkuðu lítillega eða um 0,34% og 0,16%.

Veltan á hlutabréfamarkaði nam rúmum 1,334 milljörðum og viðskipti með skuldabréf námu um 13,5 milljörðum króna.