Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,03% í dag og endaði í 1880,39 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,39% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Símans, eða um 1,62% í viðskiptum sem hljóða upp á 197 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 3,08 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Marel, eða um 0,59% í 1 milljarða króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Marel er þá 255,5 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Reita fasteignafélags, eða um 0,91% í mjög litlum viðskiptum uppá 6 milljónir. Verð á hvern hlut Reita er 86,7 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Icelandair group um 0,27% í viðskiptum upp á 138 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 36,15 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 2,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 1,6 milljarðar króna.