Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 1,56% í dag og endaði í 1835,97 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 2,36% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Össurar, eða um 0,66% í viðskiptum sem hljóða upp á litlar 400 þúsund krónur.  Fyrir utan þessa litlu jákvæðu veltu með bréf Össurar hækkaði ekkert annað gengi hlutabréfa í dag.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 2,74% í viðskiptum sem hljóða upp á 934 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 33,70 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Eikar um 0,46% í viðskiptum upp á 710 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 8,73 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 2,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 1,9 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,5% í dag í 2,5 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 1,5 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,2 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 1,3 milljarða króna viðskiptum.