Eina fjölbýlishús Raufarhafnar sem staðið hefur nánast autt í tvö til þrjú ár hefur verið keypt af útgerðarfélaginu Hólmsteinn Helgason ehf. í bænum.

Stendur til að gera allt húsið upp, og eru fyrstu tvær íbúðirnar þegar tilbúnar og var flutt inn í aðra þeirra á þriðjudag, en lengi vel var engin kynding á hluta hússins, þar sem rafmagnsreikningarnir höfðu ekki verið greiddir, að því er fram kemur í Fréttablaðinu .

Húsið er 915 fermetrar í heildina og var uppsett verð á því 58 milljónir króna þegar það var auglýst til sölu í júní 2013, en íbúðirnar í húsinu eru tveggja til fjögurra herbergja.

„Við erum að reyna að bjarga þessu frá eyðileggingu,“ segir Hólmsteinn Björnsson, framkvæmdastjóri Hólmsteins Helgasonar ehf.

„Þarna eru ellefu íbúðir en undanfarið hefur einungis verið einn íbúi í húsinu. Þetta endaði inni í þrotabúi og var komið í hendurnar á bönkunum.

Þeir voru búnir að halda hita á húsinu að mestu en þó voru frostskemmdir í ofnlögnum og því þurfti að skipta um þær svo hægt væri að kynda húsið að fullu

Það er töluvert af farandverkafólki hérna í bráðabirgðahúsnæði. Við erum einir í þessu á þessu stigi og gerum ráð fyrir að klára húsið á þeim forsendum en svo veit maður ekki hvað framtíðin ber í skauti sér.

Þetta gæti farið að hluta til í leigu til ferðamanna og til að styrkja framboðið hjá hótelinu þannig að þorpið eigi auðveldara með að taka við heilum rútum af ferðamönnum.“