Stjórn Rannsóknasjóðs hefur úthlutað nýjum styrkjum fyrir árið 2019 til 61 rannsóknaverkefnis, samtals um 850 milljónum króna, en sjóðurinn styrkir verkefni á öllum sviðum vísinda. Rannís greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Alls bárust sjóðnum 359 umsóknir og er hlutfall úthlutunar í ár 17% . Á hverju ári eru veittir um 2,5 milljarðar króna til sjóðsins, þar af fer um 1,7 milljarður króna í framhaldsstyrki til eldri verkefna, en almennt eru styrkir sjóðsins til þriggja ára. Umsóknum fjölgar á milli ára og voru þær sem dæmi 291 árið 2016. Listi yfir úthlutunina má sjá hér .

Sjóðurinn úthlutar styrkjum á öllum sviðum vísinda, allt frá styrkjum til doktorsnema til öndvegisstyrkja. Úthlutað var 3 öndvegisstyrkjum að þessu sinni, en þeir eru veittir til stórra verkefna sem skara framúr á sínu sviði og hafa alþjóðlega tengingu. Hver öndvegisstyrkur er um 150 milljónir króna til þriggja ára. Styrkina hlutu Bjarni Kristófer Kristjánsson, Háskólanum á Hólum, til verkefnisins Samþætting vist-, þróunar- og þroskunarfræðilegra þátta til mótunar á líffræðilegri fjölbreytni: Hornsíli í Mývatni sem líkan , Egill Skúlason, Raunvísindastofnun, til verkefnisins Binding niturs við umhverfisaðstæður með kerfisbundinni hönnun á rafendahvötum og Jón Ólafsson, Háskóla Íslands, til verkefnisins Lýðræðisleg stjórnarskrárgerð: Tekist á um borgaraþátttöku, vald stofnana og sameiginleg gæði .

Rannsóknasjóður

Rannsóknasjóður er leiðandi samkeppnissjóður hér á landi. Hlutverk hans er að efla grunnrannsóknir í þágu vísinda og samfélags og mennta ungt fólk til vísindarannsókna með því að styðja framúrskarandi verkefni og frábæra vísindamenn. Sjö fagráð, auk ytri matsmanna, meta umsóknir í sjóðinn og er matsferlið hliðstætt því sem best þekkist meðal erlendra sjóða. Stjórn sjóðsins tekur endanlega ákvörðun um styrkveitingar.

Áhrifa Rannsóknasjóðs gætir víðs vegar. Þau má sjá í öflugum þekkingarfyrirtækjum sem byggja á vísindagrunni og öflugu starfi í þágu samfélags á sviðum eins og lýðheilsu, lífhagkerfi, nýtingu náttúruauðlinda og eftirliti með náttúruvá. Niðurstöður rannsókna styðja við hagvöxt og heilbrigt samfélag. Íslenskir vísindamenn standa framarlega í alþjóðlegu samhengi, þeir eru í miklu alþjóðlegu samstarfi, meðal annars í gegnum vísindasjóð Evrópusambandsins, og birta ritrýndar greinar til jafns við samanburðarlöndin.