Útibú Íslandsbanka á Kirkjusandi sameinast útibúi bankans á Suðurlandsbraut í kjölfar flutnings höfuðstöðva Íslandsbanka af Kirkjusandi í Norðurturninn í haust.

Aukin sjálfsafgreiðsla

Flytur útibúið sjálft í húsnæðið á Suðurlandsbraut í upphafi næsta árs og mun sameinað útibú fá nafnið Laugardalur. Hönnun þeirra breytinga sem gerðar verða á næstu mánuðum á Suðurlandsbraut mun taka mið af breyttum áherslum um aukið vægi ráðgjafar en viðskiptavinir munu jafnframt geta nýtt sjálfsafgreiðslu fyrir einfaldari aðgerðir og þjónustu.

Útibússtjóri sameinaðs útibús verður Björn Sveinsson, aðstoðarútibússtjórar verða Vilborg Þórarinsdóttir og Þórður Kristleifsson. Viðskiptastjóri einstaklinga verður Dröfn Guðnadóttir.